Frábær skemmtun á smekkfullri bryggju – myndasafn

huni_tonleikar02Áhöfnin á Húna II hélt virkilega vel heppnaða tónleika í rigningarúðanum í Þorlákshöfn í gærkvöldi.

Mætingin á tónleikana var með allra besta móti en á svæðinu voru skráðir 1.600 manns og er það met mæting á tónleika Áhafnarinnar enn sem komið er. Gaman er að geta þess að í Þorlákshöfn búa 1.500 manns en fjöldi fólks úr bæjarfélögunum í kring lét sig ekki vanta á bryggjuna í gær.

Frábært framtak þessi tónleikaferð Áhafnarinnar á Húna og ekki síðra að Björgunarsveitir landsins njóti góðs af.

Undirritaður tók meðfylgjandi myndir á tónleikunum.

[nggallery id=5]