Villtu vinna við frístundaheimilið

grunnskólinnSveitarfélagið Ölfus óskar eftir starfsmönnum til starfa við frístundaheimilið.  Um er að ræða eina 62,5% stöðu, vinnutími er frá kl. 12:00 – 17:00 og eina 37,5% stöðu vinnutími er frá kl. 12:00 – 17:00 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.

Starfið felst meðal annars í

  •   Umsjón með börnum í 1.-3. bekk eftir skóla.
  •   Stuðningur við nemendur.
  •   Miklu samstarfi við starfsmenn grunnskóla, leikskóla og nemendur.

Menntunarkröfur

  •  Æskilegt er að umsækjendur hafi uppeldismenntun og/eða reynslu af uppeldisstörfum.
  • Góða færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, jákvæðni og áhugasemi í starfi.
  • Æskilegt að umsækandi hafi tekið skyndihjálparnámskeið.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi FOSS. Bæði kynin eru hvött til að sækja um. Umsækjandi þarf að geta hafið störf þann 19. ágúst nk. Umsóknareyðublöð fást  á www.olfus.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins í Ráðhúsinu Hafnarbergi 1  og skal skilað þangað eigi síðar en 15. ágúst 2013.

Allar frekari upplýsingar veitir Halldór Sigurðsson skólastjóri í síma  480-3850 eða á halldor@olfus.is