Malbikun á Þrengslavegi

threngsli01Á morgun, fimmtudaginn 3. október, er stefnt að því að malbika Þrengslaveg þar sem beygt er út af Suðurlandsvegi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni í dag.

Þeir sem þurfa að komast til Þorlákshafnar er bent á að keyra Hellisheiði og um Þorlákshafnarveg í Ölfusi. Ekki verða tafir á umferð frá Þorlákshöfn í átt til Reykjavíkur.

Hjáleiðir verða merktar en vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitsemi og virða merkingar verktaka.