Digiqole ad

Daníel Kárason átti hæsta boð á Herrakvöldi Þórs

 Daníel Kárason átti hæsta boð á Herrakvöldi Þórs

Daníel Kárason með myndina sína sem Lýður Guðmundsson ljósmyndari tók.

Daníel Kárason með myndina sína sem Lýður Guðmundsson ljósmyndari tók.
Daníel Kárason með myndina sína sem Lýður Guðmundsson ljósmyndari tók.

Herrakvöld Þórs fór fram í gærkvöldi þar sem fjöldi karlmanna var saman kominn til að skemmta sér og um leið styrkja körfuknattleiksdeild Þórs. Mætingin var virkilega góð og kvöldið vel heppnað í alla staði.

Einn hápunktur dagskrárinnar var uppboð þar sem mönnum gafst færi á að bjóða í ljósmyndir, málverk og Þórs búninga. Daníel Kárason gerði sér lítið fyrir og bauð 100 þúsund krónur í flottta ljósmynd á striga eftir baráttu við útgerðarmann í bænum. Daníel átti hæsta boð kvöldsins og styrkti þar með deildina mjög veglega ásamt öllum hinum sem tóku þátt í uppboðinu.