Á morgun, sumardaginn fyrsta, mun unglingaráð Knattspyrnufélagsins Ægis vera með sitt árlega sumarkaffi í Ráðhúsi Ölfuss.
Allskyns kræsingar verða á boðstólnum en það eru Ægisforeldrar sem sjá um að galdra fram matinn.
Sumarkaffið verður opið frá klukkan 14-17 og rennur allur ágóði til iðkenda vegna kostnaðar við knattspyrnumótin í sumar.
- Fullorðnir: 1.500 kr.
- 14 – 17 ára: 1.000 kr.
- 7 – 13 ára: 500 kr.
- 6 ára og yngri: Frítt