Karlalandslið Íslands í fótbolta lauk í morgun seinni æfingu sinni í Þorlákshöfn en liðið æfði í gær og í dag við frábærar aðstæður á Þorlákshafnarvelli.
Ungir Þorlákshafnarbúar mættu á völlinn til að berja stjörnurnar augum og fylgdust með æfingum liðsins. Leikmenn Íslands gáfu sér síðan góðan tíma til að gefa krökkunum eiginhandaráritanir.
Meðfylgjandi myndir tóku Össi og Garðar á æfingunni í gær.