Lúðrasveitin og leikfélagið hlutu styrki úr menningarsjóði

ludra_leikfelag01Á fundi menningarnefndar í vikunni var styrkjum úr Lista- og menningarsjóði Ölfuss úthlutað.

Þrjár umsóknir bárust í sjóðinn en til úthlutunar voru 300.000 krónur. Ákveðið var að styrkja tvö verkefni, annarsvegar leiksýninguna Enginn með Steindóri, sem Leikfélag Ölfuss er að sýna um þessar mundir og hinsvegar nýárstónleika Lúðrasveitar Þorlákshafnar sem haldnir verða í janúar 2015. Leikfélagið fær 200.000 króna styrk en Lúðrasveitin 100.000 króna styrk.