Þak fauk af iðnaðarhúsnæði í Þorlákshöfn í ofsaveðrinu sem gengur nú yfir landið og hafa tugir björgunarsveitarmanna í Árnes- og Rangárvallasýslum verið við störf í kvöld.
Grafa var fengin til að halda þakinu niðri en nærliggjandi götum hefur verið lokað af þessum sökum en það er Sunnlenska.is sem greinir frá.
Í samtali við Vísi.is segir Viðar Arnarsson, svæðisstjóri björgunarsveitanna á Suðurlandi, að ástandið sé verst í Þorlákshöfn, Eyrarbakka og á Stokkseyri.
Uppfært kl. 23:15
Fiskikör eru á víð og dreif í iðnaðarhverfinu í Þorlákshöfn samkvæmt heimildum Hafnarfrétta og steinull fýkur um allar götur.
Húsnæðið sem um ræðir er húsið sem hýsti verslunina Rás á Selvogsbrautinni og hefur steinull úr þakinu fokið langar leiðir um bæinn.