Kór Þorlákskirkju í Þorlákshöfn heldur tónleika í kvöld, miðvikudag, í tilefni af 30 ára afmæli kirkjunnar.
Tónleikarnir fara fram í Þorlákskirkju og hefjast klukkan 20. Stjórnandi kórsins er Jörg Sonderman.
Aðgangur er ókeypis en frjáls framlög eru vel þegin.