Tekjur hafnarsjóðs Þorlákshafnar af aflagjaldi hafa aldrei verið hærri en árið 2014 en tekjur af aflagjaldi það ár voru um 49,9 m.kr. Þetta kemur fram í ársreikningi Þorlákshafnar
Aflagjald er gjald sem greitt er af sjávarafurðum sem koma í land í höfninni eða í skip á hafnarsvæðinu hvort sem það sé til vinnslu í Þorlákshöfn eða til brottflutnings. Aflagjaldsprósentan var 1,4% á ferskan fisk árið 2014 en lægri prósenta var á frystan afla og eldisfisk.
Er þetta töluverð aukning í tekjum af aflagjaldinu frá því árið 2013 en það ár voru tekjurnar um 36,4 m.kr. á verðlagi ársins 2013.
Í töflunni hér til hliðar má sjá hverjar tekjur hafnarsjóðs voru af aflagjaldinu frá 2008-2014 bæði á verðlagi hvers árs og á verðlagi ársins 2014. Ef tekið er verðlag ársins 2014 þá hafa tekjur hafnarinnar af aflagjaldi einu sinni verið hærri en það var árið 2011.