Halldór með góðan leik gegn Svíum – spila um 5.-8. sæti

Halldór Garðar í leik gegn Makedóníu. Mynd - IBA/Ville Vuorinen

Halldór Garðar og félagar í u18 landsliði karla í körfubolta sigruðu Svía með tveimur stigum, 65-63, í milliriðli á EM í Austurríkiki í gærkvöldi.

Íslenska liðið þurfti að vinna leikinn með 17 stigum til að komast í undanúrslit þar sem þeir töpuðu fyrir Georgíu í fyrri leik milliriðilsins.

Strákarnir munu þá spila um 5. til 8. sætið og mæta Englendingum á laugardag kl. 20:15.

Halldór Garðar átti góðan leik í gærkvöldi en hann skoraði 10 stig og gaf 3 stoðsendingar.