Í dag fór fram árlegur blaðamannafundur KKÍ og Domino’s í Laugardalshöllinni þar sem kynnt var spá formanna, fyrirliða og þjálfara liðanna í deildinni.
Þórsurum var spáð 5. sæti í karlaflokki en Íslandsmeisturum KR spáð toppsætið nokkuð afgerandi. Fyrirliði Þórs, Emil Karel Einarsson, mætti á fundinn fyrir hönd Þórsara.
Hér að neðan má sjá spána í heild sinni.
- KR – 426
- Tindastóll – 362
- Stjarnan – 354
- Haukar – 340
- Þór Þorlákshöfn – 270
- Njarðvík – 234
- Grindavík – 226
- Keflavík – 175
- FSu – 141
- Snæfell – 105
- ÍR – 95
- Höttur – 74