Jón Guðni líklega á leið frá Sundsvall um áramótin

jon_gudni01Knattspyrnumaðurinn Jón Guðni Fjóluson er mjög líklega á leið frá félagi sínu Sundsvall í Svíþjóð um áramótin. Jón, sem er uppalinn í Þorlákshöfn, hefur spilað með liðinu undanfarin þrjú ár en samningur hans rennur út um áramótin.

Jón hefur leikið lykilhlutverk í liði Sundsvall á tímabilinu en hann var tekinn óvænt út úr byrjunarliðinu fyrir skemmstu en sú ákvörðun virðist hafa verið tekin af yfirstjórn félagsins en ekki af þjálfaranum sjálfum.

Í samtali við Morgunblaðið segir Jón Guðni um málið:

Hann setti mig á bekk­inn og sagði mér að það væri ekki út af lé­legri spila­mennsku. Eitt­hvað meira virðist því vera á bak við það og samn­ing­ur­inn er nátt­úr­lega að renna út. Ég reikna því ekki með að vera í liðinu í síðustu tveim­ur leikj­un­um.

Jóni langar að reyna fyrir sér annars staðar og komast hærra en útilokar þó ekki að semja aftur við Sundsvall:

Ef eitt­hvað slíkt kem­ur upp þá þarf ég að skoða hvort það henti fyr­ir mig og mína fjöl­skyldu. Mik­il­væg­ast í þessu er að vera ein­hvers staðar þar sem maður fær að spila. Maður vill fyrst og fremst fá að spila fót­bolta. Þess vegna er maður í þessu en auðvitað er það einnig for­senda fyr­ir því að geta sýnt landsliðsþjálf­ur­un­um hvað maður get­ur.