Skemmtileg útgáfuveisla á bókasafninu

thorlakshofn_1968Það var árið 2001 sem ákveðið var að fá Björn Pálsson, þá héraðsskjalavörð Árnessýslu, til að skrifa sögu Þorlákshafnar frá árinu 1930 til 1990. Af tilefni þess að bókin er nú að koma úr prentun verður efnt til útgáfuveislu á Bæjarbókasafni Ölfuss í Þorlákshöfn kl. 17:00-18:00 föstudaginn 27. nóvember.

Bókin spannar spennandi tímabil í sögu staðarins, þar sem ungt og athafnasamt fólk ákveður að koma til Þorlákshafnar, byggja hús og flytja hingað með fjölskyldur sínar. Smám saman verður til þorp sem býr að athafnagleði, virku félagslífi, framtakssemi og samtakamætti þeirra sem hingað fluttu.

Á bakhlið bókarinnar skrifar handritshöfundur „hér er brugðið upp myndum af framkvæmdum í Þorlákshöfn, fyrirtækjum, félögum og lífsháttum íbúa. Hundruð ljósmynda og teikninga hjálpa lesanda að rata þær söguslóðir. Skráðir íbúar árið 1950 voru fjórir, 523 árið 1970 og 1218 við sögulok árið 1990. Nefnd eru öll íbúarhús byggð á 20 árum frá 1951, íbúa getið og hvaðan þeir komu. Fjölskyldumyndir eru af nær öllum þeim sem þar höfðu tekið sér búsetu fyrir árið 1971 og teljast því frumbyggjar Þorlákshafnar.“

Í útgáfuveislunni verður flutt ávarp, Uni og Jón Tryggvi spila nokkur lög fyrir gesti og boðið verður upp á léttar veitingar. Gestum býðst að kaupa bókina á tilboðsverði á staðnum og mun Björn Pálsson árita bókina.

Barbara Guðnadóttir
Menningar- og markaðsfulltrúi Ölfuss