Heilsa og vellíðan: Súkkulaðismákökur með súkkulaðibitum

heilsa_og_vellidanÉg prufaði magnaða uppskrift af súkkulaðibitakökum um daginn sem ég verð hreinlega að deila með þér. Kökurnar eru lausar við glúten, mjólkurvörur og unninn sykur. Uppskriftin er súper einföld og tekur enga stund að útbúa kökurnar.

Kökurnar bragðast það vel að ég ætlaði hreinlega ekki að trúa því. Þær eru stökkar og finnur maður í rauninni engan mun á þeim og öðrum smákökum sem eru í óhollari kantinum.

Ég tek það fram að ég á ekki heiðurinn af uppskriftinni, hún kemur frá blogginu detoxinista.com.

Súkkulaðismákökur með súkkulaðibitum

  • súkkulaðismákökur225g möndlusmjör (Ég notaði frá H-berg, fæst í bónus)
  • 1 egg
  • 1 dl hunang
  • 35 g kakó
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1 tsk vanilla (möluð, fæst í Krónunni)
  • hnífsoddur salt
  • 80 g súkkulaði með kókos og kókossykri
  1. Kveiktu á ofninum, settu hann á blástur við 175 °C.
  2. Settu öll innihaldsefnin saman í stóra skál og blandaðu öllu vel saman með sleif.
  3. Skerðu súkkulaðið niður í litla teninga og blandaðu saman við deigið.
  4. Mótaðu kúlur úr deiginu og pressaðu þeim síðan vel niður.
  5. Bakaðu kökurnar í 8-9 mín og leifðu þeim síðan að kólna í friði.

Þú getur að sjálfsögðu notað það súkkulaði sem þér finnst best og fer vel í þig. Ég nota þetta súkkulaði því að það er eitt af fáum sem ég þoli vel þar sem það er án unnins sykurs og inniheldur ekki mjólk.

Mér finnst mikilvægt að taka það fram að þótt að kökurnar séu í hollari kantinum er samt mikilvægt að gæta hófs. Í staðin mæli ég með því að njóta hverrar einnar og einustu smáköku með bros á vör.

Jólakærleiksveðja,
Anna Guðný
Heilsa og vellíðan