Nýárstónleikar Lúðrasveitar Þorlákshafnar voru haldnir fyrir fullum sal í Versölum í gær.
Tónleikarnir voru glæsilegir að vanda og í þremur lögum söng Anna Margrét einsöng en hún er einnig klarinettuleikari í sveitinni.
Hér að neðan má sjá frábæran flutning Lúðrasveitar Þorlákshafnar og Önnu Margrétar á laginu Heyr mína bæn frá tónleikunum í gær.