Herjólfur 189 daga í Þorlákshöfn árið 2015

herjólfurHerjólfur sigldi í alls 189 daga til Þorlákshafnar á seinasta ári og fór hann 345 ferðir á milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar. Miðað við þessar upplýsingar þá má gera ráð fyrir að Herjólfur sé oftar í Þorlákshöfn en í Landeyjahöfn. Það kann þó að vera að Herjólfur hafi siglt einhverja dagana í báðar hafnirnar.

Rúm fimm ár eru síðan Landeyjahöfn var tekin í notkun en illa hefur gengið að halda höfninni opinni allt árið og því hefur Herjólfur þurft að sigla til Þorlákshafnar.

Gera má ráð fyrir að Herjólfur sigli áfram til Þorlákshafnar næstu mánuði en Sigurður Áss Grétarsson framkvæmdastjóri Siglingasviðs Vegagerðarinnar sagði í viðtali við RÚV í byrjun desember að útlit væri fyrir að Herjólfur myndi þurfa að sigla milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyjar það sem eftir er vetrar. En í dag eru 49 dagar síðan Herjólfur sigldi síðast í Landeyjahöfn.