Unglingaflokkur tryggir sér sæti í úrslitakeppninni

FB_IMG_1446400122833Unglingaflokkur Þórs/Reynis tryggði sér sæti í úrslitakeppni Íslandsmótsins í körfubolta með sigri gegn Stjörnunni í gær.

Lokatölur voru 108-68 og voru strákarnir að leika fínan bolta í leiknum í gær. Það lítur allt út fyrir að þeir mæti Grindavík í 8 liða úrslitum.

Magnús Breki Þórðarson fór á kostum og skoraði 36 stig, Davíð Arnar Ágústsson bætti við 17, Birkir Skúlason 14, Atli Karl Sigurbjartsson 13, Brynjar Þór Guðnason 10, Benjamín Þorri Benjamínsson 8, Róbert Ingi Arnarsson 5, Jón Jökull Þráinsson 3 og Ágúst Einar Ágústsson skoraði 2 stig. Halldór Garðar Hermannsson lék ekki með að þessu sinni.

Strákarnir eiga einn leik eftir í deild, gegn Stjörnunni í Garðabænum og hann fer fram í næstu viku. Því næst er svo úrslitakeppnin á dagskrá.