Raggi Nat í úrvalsliði Domino´s deildar karla

Mynd: KKÍ
Mynd: KKÍ

Körfuboltamiðherjinn káti Ragnar Nathanaelsson var valinn í úrvalslið Domino’s deilar karla við hátíðlega athöfn í gær.

Ragnar lék lykilhlutverk með Þórsurum í vetur og var einmitt kjörinn besti leikmaður Þórs á lokahófi liðsins um síðustu helgi.

Það er enginn smá hópur sem skipar úrvalsliðið með Ragnari í ár en í liðinu eru einnig Pavel Ermolinskij úr KR, Kári Jónsson úr Haukum, Haukur Helgi Pálsson úr Njarðvík og Helgi Már Magnússon úr KR.