Alda Dís, Mummi og Aron með tónleika í Þorlákshöfn

alda_disÞau Alda Dís, Mummi og Aron eru á hringferð um landið og halda tónleika um víðsvegar undir yfirskriftinni Hringferðin. Þau ætla að sjálfsögðu að koma við í Þorlákshöfn og halda tónleika í Versölum, menningarsal ráðhússins, föstudaginn 27. maí og hefjast þeir kl. 20:30.

Aðgangseyrir að tónleikunum er kr. 2000.- fyrir fullorðna og 1.000.- fyrir 16 ára og yngri.

Söngkonan Alda Dís Arnardóttir hefur heldur betur slegið í gegn undanfarið, en hún skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún vann hæfileikakeppnina Ísland got talent árið 2015. Í kjölfarið gerði hún sína fyrstu sólóplötu HEIM sem kom út í nóvember það sama ár. Núna í febrúar tók í hún þátt í söngvakeppni sjónvarpsins og hreppti annað sætið með lagið NOW/Augnablik.

Mummi eða Guðmundur Reynir Gunnarsson er ótrúlega góður píanóleikari og sérlega liðtækur í fótboltanum. Hann gaf út sína fyrstu sólóplötu, Various Times in Johnny’s Life, árið 2010. Núna í ár tók hann þátt í Ísland got talent og heillaði áhorfendur með píanóleik og söng þegar hann keppti í undanúrslitum. Aron Steinþórson er söngvari og gítarleikari í hljómsveitinni Puffin Island. Hljómsveitin var stofnuð 2015 og er Indí/Rokkhljómsveit og þeir hafa átt 3 lög á top 20 lista rásar 2 á síðasta ári og þar af eitt á í topp 3. Fyrsta plata hljómsveitarinnar kemur út í sumar.

Tónleikarnir eru hugljúfir og hressandi, en dagskráin hentar öllum aldurshópum þar sem tónlistarfólkið flytur frumsamin lög og þekkta smelli auk þess að spjalla við gesti.