Hreinsunarátak í Sveitarfélaginu Ölfusi

Líkt og undanfarin ár eru íbúar og fyrirtæki  í Sveitarfélaginu Ölfusi hvött til að taka til á lóðum sínum og jörðum. Fjarlægja skal hluti sem þeim tilheyra og eru utan lóðarmarka.

Sérstök hvatning er til fyrirtækja að snyrta vel í kringum sig.

Hreinsunarátakið hefst miðvikudaginn 2. maí og lýkur 23. maí í Þorlákshöfn og hefst 2. maí og lýkur 16. maí fyrir fyrirtæki og hefst 9. maí og lýkur 25. maí í dreifibýli.

Til að auðvelda íbúum í dreifbýlinu að losa sig við sorp hefur verið gert samkomulag við bæina Sunnuhvol og Læk um að íbúar í dreifbýli Ölfuss geta farið þangað og losnað við almennt sorp og timbur í gáma sem verða staðsettir þar.

Ef við viljum hafa fallegan og snyrtilegan bæ þá verðum við öll að taka þátt.  Þess vegna hvetjum við alla til að taka til hendinni þessa daga og tína laust rusl í kringum sig, gott væri ef íbúar myndu líka hreinsa út fyrir sínar lóðir td. utan við og meðfram girðingum, í gróðurbeðum og gangstéttum þar sem það á við.

Íbúar eru minntir á að klippa hekk og tré sem ná út yfir gangstéttar og stíga og truflað  geta umferð gangandi vegfarenda. Að öðrum kosti munu starfsmenn sveitarfélagsins klippa gróðurinn á kostnað eiganda.

Ef nauðsyn krefur geta starfsmenn aðstoðað öryrkja og eldri borgara við að fjarlægja ruslið, vinsamlega hafið þá samband við Þjónustumiðstöð í síma 483-3803, eða 899-0011.

Mánudagana 7. maí, 14. maí og þriðjudaginn 22. maí  milli kl. 8:00 – 12:00 munu starfsmenn þjónustumiðstöðvar keyra um og taka þá poka sem settir hafa verið út fyrir lóðarmörk hjá íbúum í Þorlákshöfn.  Það er ekki ætlast til að fólk setji hrúgur út á gangstétt og götu.

Vakin er athygli á opnunartíma gámasvæðisins í Þorlákshöfn:
Mánud.- fimmtud. 15:00 – 18:00 og föstud. 13:00 – 18:00.
Laugardaga er opið frá 12:00 – 16:00.
Lokað er á sunnudögum.

Munið að flokka ruslið!

Athugið að timburstaurar mega ekki fylgja girðinganeti í járnagáminn! Ef mikið er af járni, getur sveitarfélagið séð um að láta sækja járnið.

Ekki er heimilt að losa rusl annarstaðar en á gámasvæði!

Í kjölfar hreinsunarátaksins munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvarinnar fjarlægja lausamuni, númerslausar bifreiðar, bílflök og sambærilega hluti á almannafæri. Einnig verða hlutir sem valdið geta skaða, mengun eða lýti á umhverfinu fjarlægðir. Þetta gildir jafnt um smærri sem stærri hluti. Í þeim efnum er stuðst við reglugerðir nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs og 941/2002 um hollustuhætti.

Hreint land fagurt land!

Nánari upplýsingar veitir umhverfisstjóri Sveitarfélagsins Ölfus,

david@olfus.is eða í síma 899-0011.