Körfuboltamaðurinn Halldór Garðar Hermannsson hefur verið valinn í 20 ára landslið Íslands.
Liðið æfir í Þorlákshöfn um þessar mundir en framundan er Evrópumót í Grikklandi í júlí.
Halldór Garðar er, þrátt fyrir ungan aldur, einn af lykilmönnum Þórs í Domino’s deildinni og virkilega vel að þessu kominn.
Gaman er að geta þess að Þorlákshafnarbúar eiga þá fjóra fulltrúa í unglingalandsliðum Íslands í körfubolta.