Annar hluti pílagrímagöngu

skotubot01Næstkomandi sunnudag verður önnur dagleið í nýrri fimm daga pílagrímagöngu frá Strandarkirkju alla leið í Skálholt, gengin. Það er Ferðafélag Íslands sem skipuleggur gönguna ásamt undirbúningsnefnd.

Fyrsti hlutinn frá Strandarkirkju í Þorlákshöfn var genginn í maí, en metþátttaka var í þá göngu þegar tæplega 60 manns gengu þá leið í fallegu veðri. Undirbúningur þessa verkefnis hefur staðið yfir í þó nokkurn tíma og eru þessar göngur hluti af því ferli, þar sem um prufugöngur er að ræða fyrir þessa nýju leið. Göngustjórar verða þau Barbara Guðnadóttir og Axel Árnason Njarðvík.

Í þessum öðrum hluti göngunnar verður gengið sunnudaginn 12. Júní frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn, um sandfjöruna að Hafinu Bláa áfram með sjónum, framhjá Eyrarbakka og eftir nýrri gönguleið til Stokkseyrar. Lagt verður af stað með rútu frá Hólmarastarhúsinu á Stokkseyri kl. 9:30. Þessi ganga er um 19 km löng og er gott að vera í góðum gönguskóm og með nesti.

Næstu dagleiðir eru síðan eftirfarandi:

  • 26. júní. Stokkseyri – Villingaholt. Brottför með rútu frá Villingaholtskirkju kl. 9:30. Gengið frá Hólmarastarhúsinu á Stokkseyri um fallegt svæði að Gaulverjabæjarkirkju og áfram að Villingaholti um 21 km.
  • 10. júlí. Villingaholt í Flóa – Ólafsvallakirkja á Skeiðum. Brottför með rútu frá Ólafsvallakirkju kl. 9:30. Gengið um Flóann og upp Skeiðin um 20 km leið um sunnlenska sveit.
  • 24.júlí. Ólafsvallakirkja á Skeiðum – Skálholtsdómkirkja. Brottför með rútu frá Skálholti kl. 7:00. Gengið um 17 km leið frá Ólafsvallakirkju á Skeiðum sem leið liggur um fallega sveit norður í Skálholti. Göngunni lýkur á Skálholtshátíð þar sem pílagrímar koma einnig úr Borgarfirði þennan dag.

Hver ferð kostar 9.000 kr. (6.000 kr. fyrir félaga í FÍ) og er það Ferðafélag Íslands sem heldur utanum skráningu í ferðirnar en nánari upplýsingar má finna hér á vefsíðu FÍ eða í síma 568 2533.