Sveitarfélagið Ölfus hefur ráðið Katrínu Ósk Sigurgeirsdóttur í starf markaðs- og menningarfulltrúa sveitarfélagsins.
Katrín tekur við starfi Barböru Guðnadóttur sem gengt hefur starfinu síðastliðin 12 ár en 28 einstaklingar sóttu um starf markaðs- og menningarfulltrúa.
Katrín starfaði síðast sem verkefnastjóri hjá ION Adventure Hotel og er hún með diploma í starfstengdu ferðafræðinámi.