Klukkan 18 í dag, þriðjudag, fá Ægismenn lið KF í heimsókn á Þorlákshafnarvöll í 2. deildinni í fótbolta.
Ægismenn sitja í næst neðsta sæti deildarinnar með 2 stig en KF í því síðasta með 1 stig.
Leikurinn er því mjög mikilvægur fyrir bæði lið í fallbaráttunni í deildinni en það lið sem tapar í dag mun sitja í neðsta sætinu.
Nú er um gera fyrir Þorlákshafnarbúa að drífa sig á völlinn og styðja strákana til sigurs.