Vilja raunverulegan forkaupsrétt á aflaheimildum

hafnarnesverStjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, sem Ölfus er aðili að, hefur sent frá sér bókun vegna forkaupsréttar sveitarfélaga á aflaheimildum og sölu aflaheimilda úr Þorlákshöfn.

Skora samtökin á stjórnvöld að breyta lögum um stjórn fiskveiða hið fyrsta og tryggja sveitarfélögum raunverulegan forkaupsrétt.

Bókun samtakanna má lesa hér að neðan.

Stjórn samtaka sjávarútvegssveitarfélaga leggur áherslu á að sveitarfélög hafi skýran forkaupsrétt þegar skip með aflaheimildum, aflaheimildir, eða hlutir í lögaðila sem á skip með aflaheimildum eru seld til aðila með heimilisfesti í öðru sveitarfélagi. Ljóst er að núgildandi lagaákvæði veita sveitarfélögum litla vörn þegar aflaheimildir eru seldar úr viðkomandi sveitarfélagi.

Í ljósi fregna um að um 28% aflaheimilda hafi verið seldar úr Sveitarfélaginu Ölfusi, án þess að sveitarfélaginu hafi verið boðinn forkaupsréttur, skorar stjórn samtakanna á sjávarútvegsráðherra og Alþingi að breyta ákvæðum laga um stjórn fiskveiða hið fyrsta og tryggja sveitarfélögum raunverulegan forkaupsrétt.

Stjórn vill auk þess benda á það sjónarmið að forkaupsréttur hljóti að vera neyðarúrræði þegar miklir samfélags- og atvinnuhagsmunir eru í húfi, og megi ekki draga um of úr sóknarmöguleikum útgerða og byggðarlaga sem vilja sækja aflaheimildir og byggja upp útgerð á tilteknum stað. Slíkt myndi festa núverandi staðsetningu aflaheimilda í sessi. Byggðarlög með útgerð í vexti, þurfa að hafa möguleika til vaxtar.

Stjórn vekur jafnframt athygli á hugmyndum Byggðastofnunar um að svæðisbinda hluta aflaheimilda og með þeim hætti verja hagsmuni sjávarbyggða. Stjórnin harmar jafnframt þá skerðingu á byggðakvóta fyrir komandi fiskveiðiár sem boðuð hefur verið og telur að hún komi harðast niður hjá þeim sveitarfélögum sem nú þegar eiga undir högg að sækja.