Hreinsa strandlengjuna í Selvogi

blái herinnBlái herinn og sendiráð Bandaríkjanna standa fyrir fjöruhreinsun á strandlengjunni í Selvogi þann 31. ágúst nk. kl. 13:00 og er öllum boðið að taka þátt í verkefninu.

Strandlengjunni verður skipt niður í nokkur svæði sem verkefnastjórar stýra og verða svæðin hreinsuð og rusl ferjað í ruslagáma. Að lokinni hreinsun verður grillveisla í boði Sveitarfélagsins Ölfuss og landeigenda.

Þetta er þriðja árið sem Blái herinn og sendiráð Bandaríkjanna sameinast við að hreinsa fjörur og mun sendiráðið bjóða upp á rútuferð til og frá Selvogi sem fer frá Reykjavík kl. 11:00. Fyrir þá sem mæta á einkabílum verður hist hjá tjaldsvæðinu við Strandarkirkjuafleggjaranum (GPS hnit: 63.830833, -21.677238).

Mikilvægt er að staðfesta þátttöku sem fyrst, svo hægt sé að áætla hvað þurfi mikið af mat og drykk. Vinsamlegast sendið staðfestingu á Tómas Knútsson, tomas@blaiherinn.is.

Við hvetjum ykkur til þess að taka þátt í þessu frábæra verkefni þar sem Bandaríkin og Ísland taka höndum saman og gera umhverfið betra.

Kveðja,
Blái herinn og bandaríska sendiráðið á Íslandi