Búið er að breyta opnunartíma í Félagsmiðstöðinni Svítunni, en félagsmiðstöðin hefur verið ansi vinsæl meðal ungmenna í Þorlákshöfn. Opnunartíminn hefur verið óbreyttur í fjölda ára en ástæða breytingarinnar er að ansi margar íþróttaæfingar voru að rekast á við opnunartímann.
Nýr opnunartími er eftirfarandi:
6.-7. bekkur
Þriðjudaga frá 17:00-19:00
Fimmtudaga frá 17:00-19:00
8.-10. bekkur
Mánudaga frá 19:30-22:00
Þriðjudaga frá 19:30-22:00
Fimmtudaga frá 19:30-22:00
Starfsmenn Svítunnar hvetja öll ungmenni til að sækja félagsmiðstöðina en um þessar mundir er verið að setja saman ansi veglega dagskrá fyrir veturinn.