Sól rís – sól sest

ljosmyndasyning-robert-i
Mynd: Sveitarfélagið Ölfus

Róbert Karl Ingimundarson opnað glæsilega ljósmyndasýningu í Galleríinu undir stiganum í gær. Sýningin ber nafnið „Sól rís – sól sest“ og verður hún opin út október.

„Róbert Karl Ingimundarson er fæddur og uppalinn í Þorlákshöfn og hefur ætíð verið virkur í félagsstarfi í bænum og er meðal annars útgefandi bæjarblaðsins brosandi, Bæjarlíf sem er gefið út mánaðarlega. Ljósmyndun er eitt helsta áhugamálið hans og oftar en ekki má sjá hann með myndavélina á lofti að fanga réttu augnablikin. Sýningin „Sól rís – sól sest“ er fimmta ljósmyndasýningin hans í Galleríinu undir stiganum en hann hefur einnig verið með tvær aðrar sýningar með blýantsteikningum sínum“ segir á vefsíðu Sveitarfélagsins Ölfuss.

Á sýningunni eru tíu myndir af sólsetri eða sólarupprás og eru þær til sölu í eftirfarandi stærðum:

  •  60x22cm – sýningarstærðin
  • 80x30cm
  • 100x37cm
  • 120x45cm

Sýningin er opin á opnunartíma bókasafnsins en vakin er athygli á breyttum opnunartíma bókasafnsins en það er opið alla virka daga frá kl. 12:30 – 17:30.