Borgardætur verða með glæsilega jólatónleika í Þorlákshöfn næstkomandi sunnudag, 27. nóvember, sem jafnframt er fyrsti í aðventu.
Tónleikarnir verða haldnir í Versölum og hefjast þeir klukkan 20. Miðasalan á tónleikana fer fram á bókasafninu en einnig verður hægt að kaupa miða í hurð.
Tilvalið að byrja aðventuna á jólatónleikum í heimabyggð.