Norræna bókasafnavikan verður haldin hátíðleg á Bæjarbókasafni Ölfuss 16. nóvember frá 18:00 – 19:00.
Lesið verður uppúr barnabókinni Aarresaari (Fjársjóðseyjan) eftir Mauro Kunnas og IS (ÍS) eftir Ulla-Lena Lundberg.
Nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga koma og spila nokkur lög.
Hugguleg samverustund með kaffi, konfekt, kertaljós.