Ársreikningur Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árið 2017 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Ölfuss þann 22. mars sl.
Rekstur sveitarfélagsins gekk vel á árinu og var sveitarfélagið og A- og B- hluti rekið með tæplega 152 m.kr. hagnaði þrátt fyrir gjaldfærslu í rekstri sveitarfélagsins upp á tæpar 67 m.kr. vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð á árinu vegna lífeyrisskuldbindinga starfsmanna.
Helstu niðurstöðutölur ársreiknings Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árið 2017 voru eftirfarandi.
- Rekstrartekjur Sveitarfélagsins Ölfuss A og B-hluta námu alls um 2.745 m.kr. á árinu 2017.
- Þar af voru rekstrartekjur A-hluta um 2.470 m.kr. og B hluta um 275 m.kr.
- Rekstrargjöld A og B-hluta urðu alls 2.594 m.kr. Þar af voru rekstrargjöld A-hluta 2.344 m.kr. og B-hluta um 250 m.kr.
- Rekstrarniðurstaða A og B-hluta varð því jákvæð um tæpar 152 m.kr. þar af var rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 126 m.kr. sem er um 17 m.kr. betri niðurstaða en á árinu 2016 þrátt fyrir þessa miklu gjaldfærslu vegna Brúar lífeyrissjóðs.
- Rekstrarniðurstaða B-hluta var jákvæð um 26 m.kr. en á árinu 2016 var hún jákvæð um rúmar 48 m.kr.
- Engin ný langtímalán voru tekin á árinu 2017.
- Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir samstæðunnar um 4.477 m.kr.
- Fjárfest var í varanlegum rekstrarfjármunum fyrir 464 m.kr. Þar af í hafnarmannvirkjum fyrir 213 m.kr. og fasteignum fyrir 194 m.kr. Önnur fjárfesting nam 57 m.kr.
- Langtímaskuldir samstæðunnar í árslok voru 1.258 m.kr. og lækka um 31 m.kr. milli ára.
- Lífeyrisskuldbindingar í árslok voru 428 m.kr. og hækka um 12 m.kr. milli ára.
- Langtímaskuldir og skuldbindingar í árslok voru því alls um 1.686 m.kr.
- Rekstur sveitarfélagsins var með svipuðum hætti og verið hefur en þjónusta þó aukin á ýmsum sviðum sem hefur í för með sér aukinn rekstrarkostnað.
- Íbúum sveitarfélagsins fjölgaði töluvert á árinu og voru þeir þann 1. desember 2017 2.106 en voru 2.014 þann 1. desember 2016 og fjölgaði því um 92 á árinu.
Ársreikningurinn verður tekinn til síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar þann 26. apríl nk. og verður nánari fréttatilkynning send út að loknum þeim fundi.
-Fréttin er tekin af www.olfus.is.