Jónsmessuganga Ferðamálafélags Ölfuss

Hengill frá Þingvöllum. Mynd: www.olfus.is

Ferðamálafélag Ölfuss stendur fyrir Jónsmessugöngu uppá Hengil í Árnsesýslu 22. júní kl: 19:00.

Hengill er svipmikið móbergsfjall í grennd við Reykjavík. Jarðhiti er í Henglinum og ölkelda. Sunnan við Hengil eru þrjú dalverpi og í innsta dalnum, milli Hengils og Skarðsmýrarfjalls, er einn mesti gufuhver landsins.

Göngustjóri er Björg Halldórsdóttir.