Íbúar í dreifbýli Ölfuss losa nú sorp á Selfossi eða í Þorlákshöfn

Íbúar í dreifbýli Ölfuss geta ekki lengur losað sorp í Hveragerði þar sem samið hefur verið við Íslenska Gámafélagið á Selfossi um móttöku sorps frá dreifbýlinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Ölfuss.

Íbúar geta þá valið hvort þeir fari á Selfoss eða til Þorlákshafnar með sorp en fyrri auglýsing um móttöku sorps í Hveragerði fellur úr gildi vegna þessara breytinga.

Íbúar í dreifbýli Ölfuss fá 12 gámamiða afhenta svo hægt sé að losa sig við sorp án endurgjalds. Hægt er að nálgast miðana hjá Íslenska Gámafélaginu á Selfossi og á Bæjarbókasafninu í Þorlákshöfn.