KS skoðar landeldi á laxi í Þorlákshöfn

Kaupfélag Skagfirðinga, sem í dag stundar landeldi á bleikju í Þorlákshöfn, hefur hug á umfangsmiklu laxeldi á landi. En þetta kemur fram í viðtali við Þórólf Gíslason kaupfélagsstjóra á mbl.is. Telur hann að aðstaðan í Þorlákshöfn sé góð og möguleiki á meiri aðstöðu þar ef þurfa þykir.

„Við erum að skoða stór­ar hug­mynd­ir um land­eldi á laxi. Í Þor­láks­höfn eru skil­yrði góð, bæði aðgang­ur að heitu og köldu vatni, sem og sjó, og ná­lægð við flug­völl­inn. Land­eldi á laxi er komið styttra á veg í heim­in­um en marg­ir halda, og það eru ekki nema ör­fá­ir aðilar í því, eða inn­an við 100 í heim­in­um öll­um, og bara 3 – 4 veru­lega stór­ir.“