Skipulags- og byggingasvið Ölfuss boðar til íbúafundar vegna skipulagsmála innan þéttbýlis Þorlákshafnar í Ölfusi. Fundurinn er opinn og ætlaður öllum þeim er vilja kynna sér eða ræða skipulagsáform sveitarfélagsins.
Fundurinn verður haldinn í Ráðhúskaffi að Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, þriðjudaginn 22. október kl. 17.30-19.30.
Mál sem tekin verða fyrir
Skipulagsmál í vinnslu:
- Heildarendurskoðunar aðalskipulags Ölfuss, markmiðasetning.
- Áform um nýja íbúðabyggð austan Ölfusbrautar, rammaskipulag.
- Stækkun Egilsbrautar 9 og fjölgun íbúða við Sunnubraut.
- Nýtt deiliskipulag fyrir kirkjugarð Þorlákshafnarkirkju.
- Endurskoðun og stækkun athafnarsvæðis við Unu- og Vesturbakka.
- Staðarval fyrir nýtt flokkunar- og móttökusvæði.
Mál til kynningar:
- Stækkun verslunarhúsnæðis og íbúðauppbygging að Selvogsbraut 41.
- Íbúðauppbygging og aðalskipulagsbreyting að Reykjabraut 2.
- Hugmyndir að framtíðaruppbyggingu íþróttasvæðis í Þorlákshöfn.
- Stækkun byggðar til vesturs og lagning á nýjum rafstreng.
Eftir hvert mál verða spurningar og umræður. Umsjónarmaður fundar er Kristinn Pálsson, verkefnastjóri skipulagsmála. Nánari upplýsingar eða ábendingar: kristinn@olfus.is
Ath. dagskrámál verða ekki endilega flutt í þeirri röð sem hér er birt.
Skipulags- og byggingasvið Ölfuss.