Takmörkun á þjónustu og starfsemi fyrir fólk í viðkvæmri stöðu

Sveitarfélagið Ölfus hefur tekið ákvörðun um að takmarka starfsemi sína í þjónustumiðstöð aldraðra að Egilsbraut 9 í kjölfar þess að Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónaveiru (COVID-19). Ákvörðunin er tekin með tilliti til fólks sem er í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma.

Eftirfarandi takmarkanir gilda frá og með mánudeginum 9. mars þar til annað verður ákveðið. Allt félagsstarf aldraðra fellur niður þ.m.t. leikfimi, spilakvöld og aðrir viðburðir á vegum Félags eldri borgara í Ölfusi. Öll önnur þjónusta við eldri borgara helst órofin að svo stöddu.

Bent er á að sóttvarnarlæknir beinir því sérstaklega til þeirra sem teljast til viðkvæmra hópa einkum þeirra sem eru með undirliggjandi sjúkdóma og eldri einstaklinga að huga vel að hreinlætisaðgerðum og forðast mannamót að óþörfu.

Leiðbeiningar fyrir áhættuhópa