Allt félagsstarf á Níunni fellt niður

Tekin hefur verið ákvörðun um að fella niður félagsstarf á Níunni næstu tvær vikur hið minnsta. Ákvörðunin er tekin í ljósi fjölgunar smita í nærsamfélaginu og með tilliti til fólks sem er í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma.

Félagsstarfið fellur niður frá 27. október til 9. nóvember en öll önnur þjónusta við eldri borgara verður óbreytt.