Styrmir skrifaði undir tveggja ára samning við Þórsara

Styrmir Snær Þrastarson hefur endurnýjað samning sinn við körfuknattleiksdeild Þórs til tveggja ára. Frá þessu er greint á Facebook síðu Þórs.

Styrmir Snær hefur verið í stóru hlutverki á tímabilinu í meistaraflokki Þórs og vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu á vellinum.

Hann ólst upp í öflugu barna og unglingastarfi Þórs og verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands. „Styrmir býr yfir mjög sterku hugarfari og leggur sig fram við æfingar sem hefur gert hann að einum fremsta körfuboltamanni landsins. Hann er vinnusamur, áræðinn og útsjónarsamur leikmaður. Einnig tekur Styrmir virkan þátt í þjálfun ungra leikmanna og er góð fyrirmynd fyrir unga iðkendur félagsins. Við hlökkum til að vinna áfram með Styrmi í deildinni,“ segir í tilkynningu Þórsara.

Aldeilis frábærar fréttir fyrir Þórsara enda Styrmir á góðri leið að verða einhver allra fremsti körfuboltamaður landsins.