Frítt á tónleika Brek í Þorlákskirkju

Hljómsveitin Brek heldur tónleika í Þorlákskirkju í Þorlákshöfn sunnudaginn 14. nóvember kl. 20:00.

Brek er nýleg hljómsveit sem stofnuð var haustið 2018. Meðlimir eru Harpa Þorvaldsdóttir, Jóhann Ingi Benediktsson, Guðmundur Atli Pétursson og Sigmar Þór Matthíasson. Lög sveitarinnar eru sungin á íslensku en hún leggur áherslu á að nota fjölskrúðugt orðbragð og nýta þannig hinn mikla og fallega orðaforða sem íslenskan hefur upp á að bjóða.

Áhrif tónlistarinnar koma úr ýmsum áttum en Brek vill leitast við að tvinna þeim saman í sinn hljóðheim og leitast þannig við að brjóta niður múra á milli tónlistarstefna ásamt því að tengja íslenskan þjóðlagaarf við aðrar tegundir þjóðlagatónlistar. Íslenska texta og raddir í bland við samspil rytmísks og dínamísks samtals hljóðfæranna notar Brek til að drífa tónlistina áfram.

Brek var nýverið tilnefnd til Íslensku Tónlistarverðlaunanna í flokki þjóðlagatónlistar en í júní 2021 gaf hljómsveitin út sína fyrstu breiðskífu sem hefur hlotið góðar viðtökur.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og aðgangur er ókeypis.