Í FSu er hægt að stunda grunnám í matvæla- og ferðagreinum. Þetta er 70 eininga námsbraut og meðalnámstíminn er tvær til þrjár annir. Námið er ætlað nemendum sem stefna að því að vinna við ferðaþjónustu eða frekara námi í matvælagreinum svo sem matreiðslu, matartækni, bakstri, framreiðslu og kjötiðn. Námið skiptist í bóklegar og verklegar faggreinar ásamt almennum greinum. Nemendur fá starfskynningu í ferða- og matvælagreinum á vinnustöðum og fara í vinnustaðanám 18 – 24 klst. á önn. Enn eru þrjú sæti laus fyrir nemendur á þessari áhugaverðu braut en námið hefst í janúar á næsta ári.
Tengdar fréttir
1. apríl – Höfrungahópur fyrir utan Skötubót
Höfrungahópur hefur sést leika sér úti fyrir Skötubót síðan í morgun. Þeir eru nálægt landi og hafa sést stökkva listilega.…
Fuglamergð á fótboltavelli
Undanfarna daga hafa hópar blesgæsa og helsingja haldið til á fótboltavellinum við Búðahverfið. Þessir gerðarlegu fuglar hafa hér viðkomu á…
Viltu starfa með Golfklúbbi Þorlákshafnar?
Hefur þú áhuga á að starfa í líflegu umhverfi, þar sem eru mikil samskipti og fjölbreytt verkefni? Ef svo er,…