Anna Lísa sýnir í Galleríinu undir stiganum

Anna Lísa Rasmussen opnar sýningu í Galleríinu undir stiganum fimmtudaginn 1. desember kl. 17 og verður sýningin opin á meðan dagskrá er í húsinu á morgun og svo út desembermánuð á opnunartíma bókasafnsins.

Anna Lísa hefur alla tíð verið afar skapandi og handlagin og óhrædd við að fara út fyrir rammann, hún breytir hlutum, gerir upp húsgögn og spreyjar næstum allt sem á vegi hennar verður (að eigin sögn). Anna Lísa var stofnandi síðunnar Hugmyndir fyrir heimilið sem var um árabil ein vinsælasta vefsíða landsins og mikill innblástur fyrir aðrar vinsælar síður á borð við Skreytum hús.

Anna Lísa byrjaði að mála í Covid-19 faraldrinum og sótti m.a. námskeið hjá rússneskri listakonu í gegnum netið. Hún notar blek og blandaða tækni við myndverkin en þau er einnig hægt að kaupa á vefsíðu hennar.

Sýningin er sölusýning en þann 1. desember verður boðið upp á verk á 20% afslætti.