Íbúafundur um skólastefnu Sveitarfélagsins Ölfuss

Mánudaginn 6. mars, kl. 18-20 verður efnt til íbúafundar í Versölum þar sem rætt verður í hópum um stöðu skóla- og frístundamála í sveitarfélaginu – styrkleika, veikleika, áskoranir, sóknarfæri, skólaskipan og framtíðarsýn.

Síðastliðið vor hófst vinna við endurskoðun skólastefnu sveitarfélagsins. Skipaður var sérstakur stýrihópur til að vinna að endurskoðun stefnunnar og til ráðgjafar um verkefnið var ráðinn Ingvar Sigurgeirsson, kennslu- og menntunarfræðingur og fyrrverandi háskólakennari.

Mikilvægt er að sjónarmið allra hagsmunaaðila birtist í stefnunni til að hún geti orðið okkur gott veganesti til framtíðar. Nú þegar hafa verið haldnir fundir með starfsfólki beggja skólanna í bænum sem og skólaþing nemenda í því skyni að safna upplýsingum og kynnast viðhorfum þeirra.

Við hvetjum alla íbúa til þess að mæta enda mikilvægt að raddir ykkar heyrist. Sóknarfæri eru að finna í ólíkum sjónarmiðum og víðtækri reynslu allra íbúa. Skólastefna er sáttmáli um skólamálin og því áríðandi að sem allra flestir leggi sitt af mörkum.

Boðið verður upp á léttan kvöldverð og vegna undirbúnings eru væntanlegir þátttakendur beðnir um að skrá sig hjá skólaritara á skolinn@olfus.is eða hringja í s: 480 3850. Jafnframt er hægt að senda tölvupóst á Guðlaugu Einarsdóttur, verkefnastjóra á gudlaug@olfus.is ef einhverjar spurningar vakna.

Stýrihópur um skólastefnu Ölfuss