Bíómyndatónleikar LÞ

Lúðrasveit Þorlákshafnar verður með fjölskylduskemmtun af bestu sort föstudaginn 3.nóvember í Hlíðardalsskóla, Ölfusi. Þar mun sveitin leika þekkta kvikmyndatónlist úr ólíkum áttum og frá mismunandi tímabilum. Undir spilamennskunni munu rúlla myndskeið úr viðkomandi kvikmyndum á stórum skjá.

Á efnisskránni má meðal annars finna tónlist úr kvikmyndum eins og Harry Potter, Mission Impossible, Shrek og Hringjaranum úr Notre Dame. Eitthvað fyrir alla. 

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og eru sem fyrr segir í Hlíðardalsskóla, Ölfusi en til gamans má geta að Hlíðardalsskóli er einungir 8 km frá Þorlákshöfn og 40 km frá Norðlingaholti. Skottúr! 

Sem fyrr segir er um viðburð að ræða sem hentar öllum aldri og ungir sem aldnir geta komið

og notið saman. Almennt miðaverð er 3.500 kr en 2.500 kr. fyrir 12 ára og yngri. Hægt er að nálgast miða á tix.is. 

Stjórnandi er Daði Þór Einarsson.