Ásta Júlía Jónsdóttir og Óskar Gíslason eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Þorlákshafnar arið 2018 en meistaramót golfklúbbsins fór fram dagana 27.-30. júní sl.
Þrátt fyrir dræma þátttöku var mikið fjör á kylfingum og veðrið lék að mestu vel við hópinn þrátt fyrir lélegar tilraunir Veðurstofunnar til að spá miklu rigningarveðri.
Önnur úrslit urðu eftirfarandi.
Meistaraflokkur karla
- Óskar Gíslason
- Svanur Jónsson
- Ingvar Jónsson
Meistaraflokkur kvenna
- Ásta Júlía Jónsdóttir
- Dagbjört Hannesdóttir
1. flokkur
- Óskar Logi Sigurðsson
- Sindri Freyr Ágústsson
- Andri Snær Ágústsson
2. flokkur
- Sigurður Steinar Ásgeirsson
- Skúli Kristinn Skúlason