IMG_20140529_230823Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki hugmynd um að Gunni Óla væri svona svakalega öflugur söngvari! Ástæða vanþekkingar minnar er líklega sú að þegar ég hef séð hann á sviði hef ég verið á balli með Skítamóral og oftar en ekki búinn með nokkra kalda.

Í gærkvöldi voru semsagt frábærir tónleikar með Bítlabandinu og Gunna Óla í Ráðhúsinu. Hljómsveitin spilaði heilan helling af lögum Bítlanna og gerði það af mikilli snilld.

Hljómsveitin var mjög þétt og vel spilandi enda með valinn mann í hverju rúmi. Eins og fyrr segir var Gunni Óla frábær en ótrúlegustu nótur söng hann án þess að skella sér í falsettu. Kristrún Steingrímsdóttir og Margrét Harpa Jónsdóttir sáu um bakraddir en þær sungu einnig einar í sitthvoru laginu og voru báðar stórgóðar.

Þessir tónleikar voru aldeilis góð byrjun á góðri Hafnardagahelgi!