Körfuknattleiksmaðurinn Ragnar Ágúst Nathanaelsson úr Þór verður í leikmannahóp íslenska landsliðsins sem spilar á EuroBasket í Berlín í september.
Körfuknattleikssamband Íslands tilkynnti í dag leikmannahópinn sem fer til Þýskalands en sami hópur mun síðan halda á morgun til Póllands á æfingamót fyrir EuroBasket.
Ragnar er ekki eini Þórsarinn sem heldur á til Þýskalands en Baldur Þór Ragnarsson verður styrktarþjálfari íslenska liðsins. Það er því virkilega ánægjulegt að Þór frá Þorlákshöfn verði með tvo fulltrúa á EuroBasket en þetta er í fyrsta sinn sem íslenska landsliðið kemst á lokamót EuroBasket.
Hér að neðan má sjá leikmenn íslenska liðsins:
- Jón Arnór Stefánsson – án samnings
- Hörður Axel Vilhjálmsson – Trikalla, Grikkland
- Jakob Örn Sigurðarson – Boras, Svíþjóð
- Pavel Ermolinskij – KR
- Ragnar Nathanaelsson – Þór Þorlákshöfn
- Martin Hermannsson – LIU University, USA
- Axel Kárason – Svendborg Rabbits, Danmörk
- Helgi Magnússon – KR
- Ægir Þór Steinarsson – án samnings
- Logi Gunnarsson – Njarðvík
- Haukur Helgi Pálsson – án samnings
- Hlynur Bæringsson – Sundsvall Dragons, Svíþjóð