Höfrungahópur hefur sést leika sér úti fyrir Skötubót síðan í morgun. Þeir eru nálægt landi og hafa sést stökkva listilega. Um er að ræða frekar stóran hóp eða 7-10 dýr. Þeir láta vindinn ekki stöðva sig í að njóta lífsins við ströndina okkar þennan annan dag páska. Blaðamaður Hafnarfrétta skrapp í Skötubótina eftir hádegið og náði þessum myndum af höfrungunum við leik sinn.
Tengdar fréttir
Sveitarfélagið Ölfus aldrei staðið betur
Aðsend grein frá Grétari Inga Erlendssyni formanni bæjarráðs Ölfuss Við höfum aldrei staðið betur. Fyrir því eru ástæður Engum dylst…
1. apríl – Höfrungahópur fyrir utan Skötubót
Höfrungahópur hefur sést leika sér úti fyrir Skötubót síðan í morgun. Þeir eru nálægt landi og hafa sést stökkva listilega.…
Fuglamergð á fótboltavelli
Undanfarna daga hafa hópar blesgæsa og helsingja haldið til á fótboltavellinum við Búðahverfið. Þessir gerðarlegu fuglar hafa hér viðkomu á…