Körfuboltatímabilið er að bresta á og má segja að það hefjist í dag þegar Lengjubikarkeppnin fer af stað.
Það verður sannkallaður nágrannaslagur í kvöld í fyrsta leik Lengjubikarsins. Þá heimsækja Þórsarar nágranna sína í Hamri í Hveragerði.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer hann fram í íþróttahúsinu í Hveragerði.