Rétt í þessu var að ljúka viðureign Ölfus og Hveragerðis í Útsvarinu þar sem Ölfus fór með sigur eftir æsispennandi keppni.
Ölfus byrjaði mjög vel og var vel yfir meirihlutann af keppninni en í lokin var þetta orðið ansi spennandi og Hvergerðingar hefðu getað stolið sigrinum í lokin.
En okkar fólk stóð sig frábærlega og sigraði að lokum 67-66 eftir stórskemmtilega viðureign.